Um okkur

 Hver erum við?

 Við heitum Ellen Ýr og Júlían J. K. og   við erum fólkið á bak við SBD á Íslandi.

 Bæði höfum við brennandi áhuga á   kraftaíþróttum og höfum bæði æft og   keppt í kraftlyftingum með og án   búnaðar í rúman áratug. 

Við höfum bæði valið SBD vörurnar fram   yfir aðrar frá því að SBD kom fram á  sjónarsviðið og það er okkur bæði mikill   heiður og kappsmál að geta boðið  viðskiptavinum okkar upp á þessar   vörur hér á landi. Auðvelt aðgengi að  vönduðum lyftingavörum er að okkar   mati lykilþáttur í því að ýta undir velgengni íþróttafólks í kraftaíþróttum og mikil lyftistöng fyrir kraftaíþróttir hér á landi. 

Við erum opinber og viðurkenndur söluaðili SBD Apparel á Íslandi.

SBD á Íslandi er einungis vefverslun, en við tökum fagnandi á móti áhugasömum á Sogavegi 172 eftir samkomulagi.